Lýsigögn (metadata) eru staðlaðar upplýsingar um gögnin. Þau sjá til þess að aðrir geti fundið gögnin og áttað sig á inntaki þeirra og samhengi. Þar er að finna mikilvægar upplýsingar um tilgang rannsóknar, hvernig gögnum var safnað, og á hvaða tímabili gagnasöfnun fór fram. Lýsigögnin eru alltaf gefin út með Creative Commons CC0 1.0 Universal leyfi sem þýðir að allir hafa aðgang að þeim og geta nýtt þau að vild, óháð því hvaða reglur gilda um gögnin sem þau lýsa.
Hvaða upplýsingar þurfa að koma fram?
Þegar gögn eru varðveitt hjá GAGNÍS þurfa ákveðin lýsigögn að fylgja þeim (sjá töflu). Lýsigögn GAGNÍS taka mið af alþjóðlegum lýsigagnastaðli (DDI) og lýsigagnastaðli Samtaka evrópskra gagnaþjónusta í félagsvísindum (CESSDA Metadata Model).
Ef þú sendir fyrirspurn á netfangið gagnis@hi.is getum við sent þér Excel-skjal til að forskrá lýsigögn fyrir verkefnið. Skjalið getur svo fylgt gögnunum þegar þú leggur þau fram til varðveislu, til að auðvelda okkur að skrá þau í kerfið.
Nauðsynleg lýsigögn:
| Lýsigögn | Skýring | Dæmi |
|---|---|---|
| Title | Heiti gagnasafns eða upprunalegrar rannsóknar. | Könnun um aðlögun innflytjenda á Íslandi |
| Alternative title | Annað heiti sem notað er um gagnasafn eða rannsókn | Samfélög án aðgreiningar |
| Author | Nafn höfunda(r), eða heiti stofnunar. | Markus Meckl, Háskólinn á Akureyri |
| Contact | Nafn tengiliðs og aðsetur, eða heiti stofnunar sem svarar fyrirspurnum varðandi gagnasafnið. | Markus Meckl, Háskólinn á Akureyri, markus(hjá)unak.is |
| Description | Ágrip sem lýsir tilgangi, eðli og umfangi gagnasafns. | Könnunin er hluti af rannsóknarverkefninu ... |
| Subject | Rannsóknarsvið/fræðasvið rannsóknar (eitt eða fleiri valin úr fellilista). | Félagsvísindi |
| Keyword | 3-5 hugtök sem lýsa mikilvægum þáttum gagnasafnsins. Hér er stuðst við kerfisbundna íðorðaskrá CESSDA og aðeins notuð hugtök sem þar er að finna. | Immigration, International migration, Social issues |
| Topic classification | 1-5 efnisflokkar sem lýsa viðfangsefni gagnasafns á breiðum grundvelli. Hér er stuðst við efnisflokkunarskrá CESSDA og aðeins notuð hugtök sem þar er að finna. | Demography.Migration; SocietyAndCulture.SocialBehaviourAndAttitudes |
| Language | Tungumál gagnaskrár og fylgigagna (eitt eða fleiri) | Íslenska |
| Producer | Aðili sem annaðist framkvæmd rannsóknar (producer), nafn einstaklings eða stofnunar. | Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri |
| Production place | Staður þar sem rannsókn/gagnasöfnun fór fram (land eða landshluti) | Ísland |
| Contributor | Aðili/aðilar sem koma að söfnun og meðhöndlun gagna í skilgreindum hlutverkum | Markus Meckl (Project leader), Anna Soffía Vikingsdóttir (Data Manager) |
| Distributor | Nafn gagnaþjónustu sem hýsir gögnin | Gagnaþjónusta félagsvísinda á Íslandi (GAGNÍS) |
| Distribution date | Dagsetning þegar gagnasafn er tilbúið til almennrar dreifingar | 2023-12-21 |
| Depositor | Aðili sem leggur til gögnin (depositor), nafn einstaklings eða stofnunar. | Gagnaþjónusta félagsvísinda á Íslandi (GAGNÍS) |
| Deposit date | Dagsetning þegar gagnasafn er birt á vef | 2024-01-02 |
| Date of collection | Tímabil þar sem gagnasöfnun fór fram (ár-mán-dagur fyrir upphaf og lok rannsóknar). | Start: 2018-10-01; End: 2018-12-15 |
| Kind of data | Tegund gagna | Survey data |
| Software | Forrit (eitt eða fleiri) sem notast var við og útgáfunúmer forrits. | SPSS 29.0 |
| Geographic coverage | Land/landsvæði sem rannsóknin tekur til. | Ísland |